|
29.11.2006 07:57:10 / joninaros
Jæja búin að fara í ræktina í morgun - þvo þvott og ýmislegt
fleira. Ég er óneitanlega morgunkerling, get komið ótrúlegustu
hlutum í verk fyrir 9. Þetta er fundavika, tveir fundir á
mánudaginn, einn í gær og svo bæjarstjórnarfundur í dag. Svo fer nú
að koma jólahugur í menn og fundum fækkar.... Skrýtin veruleiki sem
við búum við hérna á Héraðinu núna, maður veit ekki hvar maður
getur keypt greni, hyasintur og fleiri jólanauðsynjar.... þó
Blómaval komi í vor huggar það mig lítt í jólaundirbúningnum. Það
er ákveðið ójafnvægi í samfélaginu okkar, það er svolítið eins og
gelgjulegur unglingur með ofvaxna skanka, stórfyrirtæki þrífast hér
en litlu þjónustufyrirtækin okkar þurfa að leggja upp laupana....
umhugsunarvert. Jæja en ég hlakka til að byrja að undirbúa jóln um
helgina, jólagardínur verða settar upp og aðventukransinn búinn
til... hlýt að finna greni einhvers staðar... Í vinnunni er
prófaundirbúningur á fullu, krakkarnir að ljúka sínum verkefnum og
upprifjun á fullu, í dag rifja ég upp jöfnu beinnar línu og
fleygboga....
»
25.11.2006 10:42:44 / joninaros
Nú syngur Stefán Hilmars þetta frábæra lag sem fær mig til að
finnast ég merkileg... Þegar ég hætti á Hallormsstað sungu
krakkarnir þetta lag fyrir mig með breyttum texta...þá vöknaði mér
um augu, er með textann uppi á vegg í ME.
Fór á skemmtilega uppákomu í gærkvöldi í frystiklefanum í
Sláturhúsinu - Dýrið í mér - listamenn á Héraði höfðu lagt á sig
mikla vinnu til að skemmta okkur og leyfa okkur að njóta verka
sinna. Mörg athyglisverð verk. Takk fyrir góða fólk.
Laugardagar eru fínir dagar, bara það að þurfa ekki að æða af
stað um leið og maður vaknar gefur manni helling. Það er verið að
baka handa mér brauð - á meðan það bakast ætla ég í ræktina svo ég
geti borðað með góðri samvisku. Svo er það jólatréð við KHB og
samvera við Héraðsdóm í dag og á morgun ætlum við Soroptimistar að
hitta erlendu konurnar frá Kárahnjúkum, það eru alltaf góðar
samverustundir. Góð helgi framundan - ætla að njóta hennar vona að
þið njótið hennar líka.
»
23.11.2006 14:15:39 / joninaros
Finn fyrir smá jólafiðringi, kom með seríu í vasa og kertastjaka
í vinnuna, kveikti á öllu og finnst það notalegt. Úti er
vetrarlegt, snjór yfir öllu og örlítil ofankoma. Á morgun ætla ég
upp á Fagradal til að vera við þegar heimasíður Fljótsdalshéraðs og
Fjarðarbyggðar verða opnaðar samtímis, finnst vel til fundið að
vera á hreppamörkum, vona að þetta sé stórt skref í átt að
upprætingu hrepparígs.
Er á kafi í að kynna mér hraðlestraraðferðir - það er ótrúlega
algengt að ungt fólk mælist hæglæst, það vantar þjálfun - hefur
ekki upplifað unaðssemdir bóklestrar. Ég ætla að troða inn í þau
einhverjum hugmyndum á eftir, vonand með einhverjum árangri.
»
17.11.2006 14:35:02 / joninaros
Jæja þá er enn einu sinni kominn föstudagur. Vikurnar æða áfram
og ekki síður helgarnar. Nú bíð ég í ofvæni eftir litlu
ömmustelpunni minni, sem ætlar að koma í helgarheimsókn til ömmu
meðan mamman undirbýr sig fyrir próf.
Í þessari viku er ég búin að upplifa á eigin skinni vanda
aldraðra og sjúkrahúsanna, mikið hafði ég gott af því.
Tengamóðir mín fyrrverandi datt og slasaði sig illa í fyrradag, hún
er að verða áttræð og býr ein í erfiðu húsi inni á Völlum.
Sjúkrahúsið var yfirfullt svo ég tók hana með mér heim. Hún Elsa er
einstaklega dugleg og hörð af sér en kvalirnar voru þannig að við
áttum báðar bágt!!! Við lifðum nóttina af og um morguninn var
hringt af sjúkrahúsinu og henni boðið rúm, mikið urðum við báðar
glaðar. Ég þyrfti að skrifa mikið til að koma hugsunum mínum um
þennan málaflokk öllum í orð svo ég læt hér staðar numið, veit að
þeir sem hafa upplifað það sama og ég vita hvað ég er að
hugsa.
En nú ætla ég heim að undirbúa komu nöfnu minnar - amman er í
essinu sínu. Megið þið öll eiga góða helgi.
»
06.11.2006 14:36:00 / joninaros
Jæja þá er prófkjörið búið. Merkileg tilfinning, blanda af létti og
eftirsjá, gleði og vonbrigðum... Ég verð að viðurkenna að spennan
var meiri en ég átti von á og spennufallið þar af leiðandi líka
meira. Ég óska sigurvegurunum þeim Kristjáni, Einari og Láru
innilega til hamingju, hún Ragnheiður vann þó sennilega stærsta
sigurinn, til hamingju Ragnheiður. Öllum þeim sem studdu mig þakka
ég kærlega fyrir stuðninginn, hann var mér mikils virði. Hugsanir
um prófkjör hafa verið ofarlega í huganum í gær og í dag. Mér
finnst verst við prófkjör að það er nánast vonlaust fyrir
láglaunafólk í venjulegri launavinnu að vera með af fullum krafti,
það þarf mikinn tíma og mikla peninga til að vera með í slagnum.
Hef því miður ekki fundið bestu lausnina á því að velja á lista,
held að við þurfum að leita vel að henni.... Nú tekur við að sinna
bæjarpólitíkinni og börnunum, aðalskipulagsferli verður að fara af
stað fljótlega og ég þarf að styðja hann Guðmund minn í
þýskunni....
»
|