Velkomin!
Fólkið í kringum mig
Stuðningsmenn
17.11.2006 14:35:02 / joninaros

Ömmuleikur

Jæja þá er enn einu sinni kominn föstudagur. Vikurnar æða áfram og ekki síður helgarnar. Nú bíð ég í ofvæni eftir litlu ömmustelpunni minni, sem ætlar að koma í helgarheimsókn til ömmu meðan mamman undirbýr sig fyrir próf.

Í þessari viku er ég búin að upplifa á eigin skinni vanda aldraðra og sjúkrahúsanna, mikið hafði ég gott af því.  Tengamóðir mín fyrrverandi datt og slasaði sig illa í fyrradag, hún er að verða áttræð og býr ein í erfiðu húsi inni á Völlum.  Sjúkrahúsið var yfirfullt svo ég tók hana með mér heim. Hún Elsa er einstaklega dugleg og hörð af sér en kvalirnar voru þannig að við áttum báðar bágt!!! Við lifðum nóttina af og um morguninn var hringt af sjúkrahúsinu og henni boðið rúm, mikið urðum við báðar glaðar. Ég þyrfti að skrifa mikið til að koma hugsunum mínum um þennan málaflokk öllum í orð svo ég læt hér staðar numið, veit að þeir sem hafa upplifað það sama og ég vita hvað ég er að hugsa. 

En nú ætla ég heim að undirbúa komu nöfnu minnar - amman er í essinu sínu. Megið þið öll eiga góða helgi.

Gubjörg Anna skrifaði
Kysstu litlu dóttir mína frá mömmu sinni sem saknar hennar óendanlega mikið =) Vonandi hafði þið það gott áfram, ég held nú áfram að hringja og hrinjga =) hehe... En ég hugsa að við mæðgur höfum bara báðar gott af þessu, enda búnar að vera eins og límdar saman frá því 23. sept 05 og lengur ef út í það er farið =) En nú verð ég að drífa mig í aukatíma í bókhaldi! Kossar frá mér mundu það!!!
Rannveig skrifaði
Við Kolgríma hefðum kosið að hitta litlu dömuna. En við verðum að bíða til jóla enda var slen í mér og ekki við hæfi að dreifa því til lítilla borgardætra.
Gubjörg Anna skrifaði
Sérstaklega þegar mæður þeirra eru í prófum =)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.