|
|
23.02.2007 11:26:37 / joninaros
Mér hafa nú alltaf leiðst flutningar en ég ákvað nú samt að
flytja mig um bloggset og er flutt á moggann. Þið ágæta fólk sem
hafið litið hér við mynduð kannski líta framvegis á:
joninaros.blog.is
»
20.02.2007 10:09:33 / joninaros
Jæja - nú verður tekið á því og byrjað að blogga aftur.
Kosningar nálgast og ýmislegt skemmtilegt að segja í því
samhengi. Við Samfylkingarfólk á Norðausturlandi hittumst á
Narfastöðum í Reykjadal á laugardaginn og réðum ráðum okkar. Ég er
ekki frá því að bestu ráðin hafi orðið til í heita pottinum eftir
miðnætti þar var ýmislegt rætt og því skolað niður með sérstöku
jafnaðarmannarúgbrauði með spægipylsu og kæfu. Sérstaklega góð
blanda, rúgbrauðið og pólitíkin og mjöðurinn sem drukkinn var með
skemmdi ekkert fyrir....
Það sem mér fannst ég koma með heim úr þessum heita potti var að
sérstaða okkar er og verður það að við erum jafnaðarmannaflokkur
sem fyrst og fremst berst gegn hvers kyns ójöfnuði
og vinnur fyrst og fremst að því að ná fram jöfnuði
fólksins sem býr í þessu landi.
Í bæjarpólitíkinni eru samgöngumálin ofarlega á baugi: þjóðvegur
1 í gegnum Egilsstaði, Skriðdalur, jarðgöng o.s.frv....
Heima hjá mér vinn ég að því að vekja áhuga 12 ára dóttur minnar
á dásemdum stærðfræðinnar og hjálpa henni þess á milli að undirbúa
sig undir Ístölt 2007 á Eiðavatni á laugardaginn sjá nánar um
það á. www.freyfaxi.net
Við Eiðavatnið ætla ég að dvelja á laugardaginn og stjórna þar
börnum og ungmennum í gengum þeirra keppni. Veðrið virðist ætla að
leika við okkur um helgina - þið ættuð að líta við það er enginn
svikinn af degi við Eiðavatnið í félagsskap góðra gæðinga.
Meira fljótlega....
»
07.12.2006 10:34:03 / joninaros
Heimili mitt og vinnustaðurinn er undirlagt af prófum. Ég er með
prófin mín í stærðfræði í dag, Guðmundur er í jarðfræðiprófi og fer
í stærðfræði eftir hádegi, Guðbjörg Anna er í prófi í
stjórnskipunarrétti núna, en Berglind Rós nýtur lífsins og þarf
ekkert að læra.... Svona finnst mér þetta búið að vera á þessum
árstíma frá því ég man eftir mér, þetta er ágætt, svolítið álag en
ágætt. Man þegar ég var í framhalds- og háskóla hvað það var gaman
að vera búin í prófum, núna er gaman þegar allir hinir eru búnir í
prófum og jólafrí hefst...
Var á bæjarstjórnafundi í gær þar sem fjárhagsáætlun fyrir næsta
ár var samþykkt, það er gott að búa á Fljótsdalshéraði því það á að
gera margt fyrir íbúana á næstu árum, það á að byggja leikskóla,
grunnskóla, gervigrasvöll, tónlistarskóla, ráðhús,reiðhöll, bæta
aðstöðuna í íþróttahúsinu o.s.frv. En til að geta gert allt þetta
þarf að gæta aðhalds í rekstri, held að það sé ekki slæmt, það hafa
allir gott af því að temja sér aðhaldssemi...
En svo eru það jólin, nú styttist í að þær mæðgur Guðbjörg Anna
og Karen Rós komi í ömmu hús, ég hlakka mikið
til, það er ótrúlega gaman að fá stóru stelpuna heim til að
spjalla við og vinna með að jólaundirbúningi og ekki er síðra að fá
litla skottið sem er ótrúlega skemmtileg.... Jólin eru jú
fjölskyldhátíð, ég hef þroskast ótrúleg mikið á
undanförnum árum, þrif og bakstur hafa vikið fyrir ánægjunni
af því að vera með góðu fólki og slaka svolítið á.
»
29.11.2006 07:57:10 / joninaros
Jæja búin að fara í ræktina í morgun - þvo þvott og ýmislegt
fleira. Ég er óneitanlega morgunkerling, get komið ótrúlegustu
hlutum í verk fyrir 9. Þetta er fundavika, tveir fundir á
mánudaginn, einn í gær og svo bæjarstjórnarfundur í dag. Svo fer nú
að koma jólahugur í menn og fundum fækkar.... Skrýtin veruleiki sem
við búum við hérna á Héraðinu núna, maður veit ekki hvar maður
getur keypt greni, hyasintur og fleiri jólanauðsynjar.... þó
Blómaval komi í vor huggar það mig lítt í jólaundirbúningnum. Það
er ákveðið ójafnvægi í samfélaginu okkar, það er svolítið eins og
gelgjulegur unglingur með ofvaxna skanka, stórfyrirtæki þrífast hér
en litlu þjónustufyrirtækin okkar þurfa að leggja upp laupana....
umhugsunarvert. Jæja en ég hlakka til að byrja að undirbúa jóln um
helgina, jólagardínur verða settar upp og aðventukransinn búinn
til... hlýt að finna greni einhvers staðar... Í vinnunni er
prófaundirbúningur á fullu, krakkarnir að ljúka sínum verkefnum og
upprifjun á fullu, í dag rifja ég upp jöfnu beinnar línu og
fleygboga....
»
25.11.2006 10:42:44 / joninaros
Nú syngur Stefán Hilmars þetta frábæra lag sem fær mig til að
finnast ég merkileg... Þegar ég hætti á Hallormsstað sungu
krakkarnir þetta lag fyrir mig með breyttum texta...þá vöknaði mér
um augu, er með textann uppi á vegg í ME.
Fór á skemmtilega uppákomu í gærkvöldi í frystiklefanum í
Sláturhúsinu - Dýrið í mér - listamenn á Héraði höfðu lagt á sig
mikla vinnu til að skemmta okkur og leyfa okkur að njóta verka
sinna. Mörg athyglisverð verk. Takk fyrir góða fólk.
Laugardagar eru fínir dagar, bara það að þurfa ekki að æða af
stað um leið og maður vaknar gefur manni helling. Það er verið að
baka handa mér brauð - á meðan það bakast ætla ég í ræktina svo ég
geti borðað með góðri samvisku. Svo er það jólatréð við KHB og
samvera við Héraðsdóm í dag og á morgun ætlum við Soroptimistar að
hitta erlendu konurnar frá Kárahnjúkum, það eru alltaf góðar
samverustundir. Góð helgi framundan - ætla að njóta hennar vona að
þið njótið hennar líka.
»
23.11.2006 14:15:39 / joninaros
Finn fyrir smá jólafiðringi, kom með seríu í vasa og kertastjaka
í vinnuna, kveikti á öllu og finnst það notalegt. Úti er
vetrarlegt, snjór yfir öllu og örlítil ofankoma. Á morgun ætla ég
upp á Fagradal til að vera við þegar heimasíður Fljótsdalshéraðs og
Fjarðarbyggðar verða opnaðar samtímis, finnst vel til fundið að
vera á hreppamörkum, vona að þetta sé stórt skref í átt að
upprætingu hrepparígs.
Er á kafi í að kynna mér hraðlestraraðferðir - það er ótrúlega
algengt að ungt fólk mælist hæglæst, það vantar þjálfun - hefur
ekki upplifað unaðssemdir bóklestrar. Ég ætla að troða inn í þau
einhverjum hugmyndum á eftir, vonand með einhverjum árangri.
»
17.11.2006 14:35:02 / joninaros
Jæja þá er enn einu sinni kominn föstudagur. Vikurnar æða áfram
og ekki síður helgarnar. Nú bíð ég í ofvæni eftir litlu
ömmustelpunni minni, sem ætlar að koma í helgarheimsókn til ömmu
meðan mamman undirbýr sig fyrir próf.
Í þessari viku er ég búin að upplifa á eigin skinni vanda
aldraðra og sjúkrahúsanna, mikið hafði ég gott af því.
Tengamóðir mín fyrrverandi datt og slasaði sig illa í fyrradag, hún
er að verða áttræð og býr ein í erfiðu húsi inni á Völlum.
Sjúkrahúsið var yfirfullt svo ég tók hana með mér heim. Hún Elsa er
einstaklega dugleg og hörð af sér en kvalirnar voru þannig að við
áttum báðar bágt!!! Við lifðum nóttina af og um morguninn var
hringt af sjúkrahúsinu og henni boðið rúm, mikið urðum við báðar
glaðar. Ég þyrfti að skrifa mikið til að koma hugsunum mínum um
þennan málaflokk öllum í orð svo ég læt hér staðar numið, veit að
þeir sem hafa upplifað það sama og ég vita hvað ég er að
hugsa.
En nú ætla ég heim að undirbúa komu nöfnu minnar - amman er í
essinu sínu. Megið þið öll eiga góða helgi.
»
06.11.2006 14:36:00 / joninaros
Jæja þá er prófkjörið búið. Merkileg tilfinning, blanda af létti og
eftirsjá, gleði og vonbrigðum... Ég verð að viðurkenna að spennan
var meiri en ég átti von á og spennufallið þar af leiðandi líka
meira. Ég óska sigurvegurunum þeim Kristjáni, Einari og Láru
innilega til hamingju, hún Ragnheiður vann þó sennilega stærsta
sigurinn, til hamingju Ragnheiður. Öllum þeim sem studdu mig þakka
ég kærlega fyrir stuðninginn, hann var mér mikils virði. Hugsanir
um prófkjör hafa verið ofarlega í huganum í gær og í dag. Mér
finnst verst við prófkjör að það er nánast vonlaust fyrir
láglaunafólk í venjulegri launavinnu að vera með af fullum krafti,
það þarf mikinn tíma og mikla peninga til að vera með í slagnum.
Hef því miður ekki fundið bestu lausnina á því að velja á lista,
held að við þurfum að leita vel að henni.... Nú tekur við að sinna
bæjarpólitíkinni og börnunum, aðalskipulagsferli verður að fara af
stað fljótlega og ég þarf að styðja hann Guðmund minn í
þýskunni....
»
31.10.2006 14:10:14 / joninaros
Nú er klukkan bara að verða tvö og ég er búin að ná þremur
fundum í dag.
Byrjaði kl 7:30 í morgun að funda með Miðbæjarhópnum það er nú
alveg frábært að fá að vera með í því verkefni, uppbygging og
nýbreytni er nú skemmtilegra en flest annað.
Svo hentist ég í vinnuna og kenndi einn tíma í stæ 202, mér
finnst nú alltaf gaman að kenna algebru!!
Þá
var komið að því að vinna áfram að starfsáætlun fyrir Skipulags- og
byggingarnefndina, það er ótrúlega lærdómsríkt fyrir mig, sem þekki
málaflokkinn lítið, við skoðum stefnu, lög og reglugerðir –
ótrúlega áhugavert!!
Í
hádeginu fór ég svo á fund á Hótel Héraði um fyrirhugaðan
Vatnajökulsþjóðgarð, fundurinn var á vegum atvinnumálanefndarinnar
okkar. Skúli Björn Gunnarsson var með framsögu, en hann hefur setið
í ráðgjafanefnd ráðuneytisins fyrir hönd
sveitafélagsins. Þetta
er frábær hugmynd, vona svo sannarlega að hún verði að veruleika,
þó hún kosti slatta af milljónum. Þessi þjóðgarður á eftir að skila
okkur miklu ef hún verður að veruleika.
Nú
sit ég svo með snillingana mína tvo Aron og Kristbjörn og læt þá
reikna. Aron er með Downs-heilkenni en Kristbjörn er einhverfur.
Þeir eru frábærir, Aron er mikill íþróttamaður og listamaður en
Kristbjörn mikill verkmaður, samviskusamur og duglegur.
Þegar ég les yfir það sem ég hef skrifað í dag sé ég mikla
jákvæðni svífa yfir vötnunum, sennilega er ég mjög jákvæð
kona.....
En ef einhver
á eftir að skila atkvæðaseðlinum sínum þá er síðasti sjéns í dag...
ekki gleyma....
»
30.10.2006 13:44:06 / joninaros
Á laugardaginn fór ég á frábært málþing með yfirskriftinni:
“Stjórnmál eru fyrir konur” styrkur – reynsla – árangur.
Málþingið var haldið á Fáskrúðsfirði og voru þar mættar um 20
konur. Helga Jónsdóttir bæjarstjóri í Fjarðarbyggð var með
inngangserindi og síðan var skipt í umræðuhópa sem síðan skiluðu
af sér og spjallað var um niðurstöðurnar. Ég fór alsæl heim því mér
fannst ég hafa lært mikið af þessum ágætu konum sem voru ýmist
samherjar mínir í pólitík eða á allt annarri skoðun, en kyn
okkar og sameiginlega reynsla tengdu okkur greinilega saman. Ég
hlakka til meira samstarfs við þessar ágætu konur. Það sem er
efst í huga mér eftir málþingið er að við konur eigum að vera
óhræddar við að vera konur, berjast fyrir okkar gildum,
fjölskylduvænna vinnuumhverfi í pólitísku starfi og henda okkur
svo bara út í djúpu laugina, við erum snillingar í að bjarga
okkur.
Verð að viðurkenna að ég varð fyrir vonbrigðum með
niðurstöðuna í prófkjörinu okkar í Norðvesturkjördæmi, ekki það að
ég efist um að þeir Guðbjartur og Karl séu góðir liðsmenn en Anna
Kristín hefur staðið sig eins og hetja á Alþingi svo ég hefði
viljað sjá hana ofar í listanum. Hvar er jafnaðarstefnan okkar?
Er enn til fólk sem
treystir körlum betur en konum í pólitík?
Hver ætli rökin séu? Tæplega líkamlegir burðir! Hvenær verður
jafnrétti kynjanna veruleiki?
Nú
er ég að verða svolítið spennt að fá niðurstöðu úr prófkjörinu, ég
vona það besta og óttast hið versta, úrslitin í Norðvesturkjördæmi
eru ekki upplífgandi fyrir okkur konurnar en....
»
27.10.2006 14:51:50 / joninaros
Í dag ætla ég að hætta snemma að vinna og njóta þess að
vera húsmóðir, það er kosturinn við að vera önnum kafin,
heimilisstörf verða eftirsóknarverð!
Pólitíkin er þó alltaf með, mun upphugsa einhver plott á meðan
ég skúra og brýt saman þvottinn.
Hef verið að spá í hversu gott það væri að við, sveitafélögin
á Mið – Austurlandi myndum vinna meira saman og sameina krafta
okkar í baráttumálum okkar á sviði samgöngumála, menntamála og ýmis
konar uppbyggingu á þjónustu.
Myndi það ekki vinna Austurlandi meira gagn en hin eilífa
umræða um í neðra og efra??
Kíki kannski á áhugaverða pólska sýningu í KOmpunni á eftir,
Menningarmiðstöðin okkar er að standa sig frábærlega og
menningarmál á Austurlandi í góðum gír, þó sjálfsagt megi alltaf
gera betur.
»
26.10.2006 11:09:36 / joninaros
Þið verðið að kíkja á heimasíðuna hans Konna kynlega, sjá
tengil hér til hliðar. Ég á greinilega stuðningsmann þar. Takk
Konni minn, þú ert æði. Þegar ég las pistilinn hans mundi ég eftir
að ég er í Þorrablótsnefnd á Völlunum, það er skemmtilegt verk og
ég er búin að ráða félaga Konna kynlega til að vera söngstjóra nú
þegar. Svo var ég í Þorrablótsnefnd á Egilsstöðum síðast sem þýðir
að á næsta Þorrablóti á Egilsstöðum fáum við félagarnir í gömlu
nefndinni bestu sætin og gleðskap á bóndadag frá morgni til kvölds
– frábært!
Er aðeins í því að hringja í félaga og spjalla við þá um
pólitík, stuðning og atkvæðaseðla, það eru skemmtileg samtöl, ég
læri heilmikið. Nú fer verulega að síga á seinni hluta þessa
prófkjörs, ég er að verða værukær og tel úrslitin nánast ráðin nú
þegar.
Ég er farin að spá í val næstu annar fyrir snillingana mína á
Almennu brautinni, þar þarf einstaklingsmiðun að ráða ríkjum svo
allir fái eitthvað við sitt hæfi. Reiknilíkanið hjá ráðuneytinu
skilur ekki hugtakið einstaklingsmiðun, væri til í að komast í
þetta ráðuneyti og útskýra það í eitt skipti fyrir öll fyrir
reiknilíkaninu og fleiri hálfsteinrunnum vélmennum hvað
einstaklingsmiðun er!!
»
23.10.2006 21:07:50 / joninaros
Jæja þá er fundarlotunni þar sem frambjóðendur kynna sig lokið.
Í gær vorum við á Siglufirði og Akureyri. Það var vel mætt og
skemmtilega umræður fóru fram. Mér finnst samt skemmtilegast að
hitta fólkið á undan og eftir. Maður hittir alls konar frábært
fólk. Veritnn okkar á Siglufirði hann Finni var frábær, væri til í
að fá Fílapenslana sem er æringjahópur sem hann tilheyrir, hingað
austur einhvern tíma í kosningabaráttunni. Guðrún sem vinnur við
málefni fatlaðra á Siglufirði greinilega baráttukona. Á Ólafsfirði
lentum við í frábærri sviðaveislu hjá tengdaforeldrum hennar Láru,
skemmtileg og hress hjón það. Á Akureyri var gaman að hitta félaga
sem maður þekkir svo og nýtt fólk sem maður hefur ekki talað við
áður. Við drifum okkur nú heim fljótlega eftir fundinn því veðrið
var ekkert spennandi. Það var leiðindafæri alla leiðina austur og
ég verð elskunni honum Ástvaldi ævinlega þakklát fyrir að nenna að
koma að sækja mig. Mikið verður nú spennandi að sjá hvernig
niðurstaðan verður. Hlakka til að slaka á með félögum mínum á
Akureyri að kvöldi 4. nóvember eftir að úrslit liggja fyrir.
En þið hafið tekið eftir laumufarþeganum á síðunni minni er það
ekki? Hún Guðfinna Bjarnadóttir úr Reykjavík og úr
Sjálfstæðisflokknum er greinilega á einhverju flakki. Ég hef aldrei
tekið illa á móti heimilislausum svo sé hún bara velkomin!
Hlakka til að fara snemma að sofa því klukkan var að verða 4
þegar ég fór að sofa í nótt. Ég var að enda við að skrifa grein í
Austurlandið þar sem ég gagnrýni skólakerfið talsvert. Set hana
kannski víðar.
»
19.10.2006 15:11:38 / joninaros
Nú styttist í það að atkvæðaseðlar í prófkjörinu verði sendir út
og þeir sem á kjörskrá eru geri upp hug sinn og velji fólkið sem
það treystir best í 3 efstu sæti lista Samfylkingarinnar í
Norðausturkjördæmi vegna Alþingiskosninganna í vor. Mér finnst
spennandi að sjá hvernig niðurstaðan verður. Kosningaréttur felur í
sér ábyrgð. Vonandi hugsa kjósendur vel um hvernig listinn verður
sem sölulegastur þannig að sigurinn verði sem stærstur í vor.
Félagshyggjan verður að komast til valda til að mannleg og
félagsleg gildi taki við af penninga- og einstaklingshyggjunni sem
rutt hefur réttlæti og jöfnuði til hliðar. Ég vona bara að fólk
noti atkvæðið sitt.
Annars er ég á kafi í að finna leiðir til að nemendur mínir mæti
almennilega í skólann og vinni sín verk þar.
»
17.10.2006 11:13:28 / joninaros
Byrjaði daginn á því að lyfta í íþróttahúsinu. Það er góð byrjun
á deginum. Varð þó að hætta í miðjum klíðum vegna fundar í
Miðbæjarhópnum sem hófst kl. 7:30. Þar áttum við góðan fund
um spennandi viðfangsefni. Nýr og glæsilegur miðbær á Egilsstöðum
verður að veruleika innan tíðar, verkið verður auðvitað unnið smám
saman en startið er handan við hornið.
Kenndi svo skemmtilegum hópi um ójöfnuhneppi og tölugildi áður
en gamall nemandi minn Gunnar Gunnarsson blaðamaður á
Austurglugganum kom og tók við mig viðtal. Okkur gekk vel að
spjalla, margt sagt og vonandi verður það merkilegasta sett á
prent. Í hádeginu í dag er svo hádegisverðarfundur á vegum
atvinnumálanefndar þar sem miðbæjarskipulagið verður kynnt, þangað
ætla ég að mæta og styðja við bakið á okkar fólki.
»
Síður: 1 2
|
|